Facebook er rugl......

Ekki hafði ég nein vandamál að fara inn á vefsíður, enda er ég ekki skráður sem notandi á Facebook.

Ég hef oft spáð í það af hverju það er einhver not fyrir það að einver gaf kettinum sínum að éta eða að einhver var að koma af klóssetinu.

Þetta er bara rugl síða og endar með því að fara á hausinn, einhvern tíman í náini framtíð. Ekki hjálpar það ef fólk getur ekki gert það sem það þarf að gera t.d. almenn viðskipti vegna einhverra mistaka facebook. Þá fer nú fjöldin að afskrá sig.

Kveðja frá Las Vegas. 

 


mbl.is Facebook lagði netið á hliðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldrei fleiri fasteignir á uppboð

Svo segja Stjórnarflokkarnir og áhangendur þeirra að Ríkisstjórnin hafi gert allt sem þarf að gera til að bjarga heimilunum.

Þvílíkur áróður, vonandi les fólk þessa stuttu grein sem þessi pistill er skrifaður um og getur dæmt um það sjálft hveru góð skjallborg heimilana sem þessi Ríkisstjórn lofað kjósendum fyrir kosningar var og er í raun og veru.

Í staðinn fyrir að bjarga heimulunum frá rústaraðgerðum auðmanna elítunar, þá finnst þessari Ríkisstjórn meira áríðandi að vera í einhverju Stjórnarskrárrugli, á þessum síðustu dögum fyrir þingrof. Svona hugsar Ríkisstjórnin um hinn almenna borgara. Meira liggur á að skjaldborg auðmanna elítunar sé vernduð og vinna að gæluverkefni latte lepjandi lýð 101 Reyjavík, Stjórnarskrána.

Vonandi sjá kjósendur hræssni Ríkisstjórnarflokkana, Bjartrar Framtíðar, Hreifingarinnar sem er núna Dögun og kjósa ekki þetta hyski í vor.

Kveðja frá Las Vegas 


mbl.is Aldrei fleiri fasteignir á uppboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og enn lýgur Samfó.....

Var ekki Samfó að básúna út í allar áttir að það ætti að hægja á aðlögunarferlinu í ESB? Enn einu sinni er Samfó staðin að því að ljúga að landsmönnum, megi skömm Samfó lengi lifa.

Hvað kemur Grikklandi eða Kýpur það við hvernig fjármál íslendinga eru? Væri þeim ekki nær að hugsa um sín eigin fjármál.

ESB kemur bara bókstaflega ekkert við hvernig fjármál og fjármálaáættlanir Íslands eru og íslendingar þurfa enga blessun ESB hvað íslendingar ættla að gera í fjármálum landsins.

Þá er það á hreinu Samfó er ESB flokkur og ætti að skipta um nafn, ekki í jafnaðarflokkur Ísnads, heldur ESB flokkur íslands.

Kveðja frá Las Vegas. 

 


mbl.is Skýrsla um efnahagsmál send ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

What is the difference......

Eftir að ég las þessa smáfrétt að Mahmoud Ahmadinejad Forseti Írans varð öfunsjúkur út í eina geimfara Írans, apan sem skrap út í geiminn.

What is the difference, the monkey or Mahmoud Ahmadinejad same difference, they behave alike.

Kveðja frá Las Vegas. 

 


mbl.is Forsetinn vill fyrstur út í geim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB eykur áróður

Við erum erum nú kunnug áróðri ESB hér á Íslandi. Það eru menn sem skjóta upp kollinum með athugasemdir til varnar ESB hvenær sem ESB er nefnt í pistli eða athugasemd.

Ómar, Mafnús, Ásmundur, Jón o.s.frv. eru nokkrur nöfn sem koma í huga minn þegar ég las þessa frétt.

Nú ættlar ESB að auka áróðurinn, þýðir það að við fáum meira af sömu frösunum um hvað ESB er gott fyrir íslendinga og kanski fleirri en þessir sem eru nú þegar á launum hjá áróðursdeild ESB.

En ég held að fólk á Íslandi sé betur mentað en annarsstaðar í henni víðu veröld, að það skipti engu máli hversu margir áróðurssveinar/meyjar verði á launum hjá áróðursdeild ESB.

Já þessir háu herrar roðna ekki við það að viðurkenna að þeir eyði miklum fjármunum í ritskoðun, mér dettur helzt í hug Stassi, KGB, CIA og FBI.

En svona verður ritfrelsið og tjáningarfrelsið rifið niður smátt og smátt, þar til að ritskoðun verður eins og t.d. í Sádi Arabíu, kannast svolítið við þetta þar, hef verið í Sádi Arabíu mjög oft.

Vonandi standa menn vörð um frelsi og þá sérstaklega rit og tjáningarfrelsi.

Kveðja frá Las Vegas 


mbl.is Vill taka á gagnrýni á ESB á netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Steingrímur J. kanski góður pókerspilari.......

Ég held að þetta sé fyrsti jákvæði pistillinn minn og athugasemd sem er jákvæð um gjörðir Steingríms Jóhanns Sigfússonar (SJS).

Skotar, norðmenn, írar og ESB (SNÍES) hafa alltaf verið að tala um rányrkju íslendinga á markrílstofninum. Nú hefur Alþjóða hafránsóknarráðið ICES gefið út að til að stoppa þessa rányrkju þá verður kvótinn að minka um 15% á þessu ári.

ICES er stofnunin sem SNÍES eru alltaf að nota sem heimild um rányrkju markrílsins. Ef Þessir SNÍES fara ekki eftir því sem ICES boðar, þá hafa þeir gert þessa stofnun ICES að ómerkri stofnun.

SJS hefur ákveðið að fara eftir lækkun markríl kvóta um 15% eins og ICES hefur boðað og þar með verið gefið the ace in the hole, so to speak.

Hvað gera SNÍES lækka kvótan eða fara ekkert eftir kvóta lækkunar boði ICES um 15%?

Ef þeir lækka ekki markríl kvóta sinn um 15% þá eru þeir þar með búnir að lýsa því yfir að ICES er ómerkileg stofnun sem er ekkert mark takandi á.

Á næsta kvótafundi Íslands og SNÍES og komi einhver vísbending frá þessum SNÍES löndum um að ICES hafi komist að þessari niðustöðu að um rányrkju markrílsins sé ræða, þá getur SJS notað ásinn í holuni, og bent á að þessi SNÍES lönd noti ICES ransóknir þegar þeim hentar en fara ekkert eftir ICES þegar það hentar þeim ekki eins og t.d. þegar ICES benti á að lækkun markrílskvótans um 15% væri nauðsynleg.

Góð spilamenska ef þetta er ástæðan fyrir kvótalækkun SJS um 15%?

Kveðja frá Las Vegas 


mbl.is Makrílkvótinn 15% minni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja írarnir grípa til lýginar.....

til að réttlæta mistök írskra stjórnvalda að láta landsmenn greiða fyrir skuldir fjámálasukkara. En það er góð ástæða fyrir því, ESB þvinganir.

Svo segir fjármálaráðherra íra Michael Noonan að "Ísland vann engan sigur."

Svo talar þessi merki maður Noonan um að sparnaður flestra íslendinga hafi þurkast út, en hvað um sparnað íra?

Sparnaður íslendinga hafði lítið að gera með IceSave ómyndina, heldur var það aðgerðarleysi stjórnar JóGrímu, og skjaldborg hennar um auðmana elítuna.

En það sem fer mest í taugarnar á Noonan að íslendingar fengu úr því skorið í dómsorði frá EFTA dómstól að Ríkið á ekki að ábyrgjast tryggingarsjóði bankana. En írskur almenningur situr uppi með allar skuldir fjármálasukkarana, og það sjá írar núna eftir EFTA dóminn.

Semsagt; ESB báknið hótuðu írum öllu illu ef þeir setu ekki Ríkisábyrgð á skuldir þessara fjármálasukkara samt vill SF ganga í ESB þrælahaldið.

Kveðja frá Las Vegas 


mbl.is „Ísland vann engan sigur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Víkja frá arfleifð hefndar og haturs“

En er þetta ekki ósk hyggja, er ekki er ekki hatrið og hefndarhyggjan orðin svo rótgróin hjá vinstrimönnum að það er ekki hægt að eyða því? 

Með öðrum orðum; er ekki hatrið og heiftin sem ættu að vera undantekning orðin það sem vinstrimönnum finst orðið normalt?

Ekki heyrir maður annað frá vintrimönnum nema að það eigi eyða Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum og hvað flokksmenn (S) og (F) séu vitlausir, heimskir og eru landráðamenn (drógu einn Sjáfstæðismann fyrir Landsdóm sem frægt er orðið). Í staðinn fyrir að tala um að reyna hjálpa landsmönnum að lifa af Samfylkingar Hrunið, og þá sérstaklega þeim heimilum sem eru að fara í rúst vegna græðgi auðmanna elítunar. 

En kanski hefur Sturla rétt fyrir sér, en ég held ég noti gamalt orðtiltæki "trust, but verfy," og geymi að leggja dóm á framtíð haturs og hefndarhyggju vinstrimanna.

Kveðja frá Las Vegas. 


mbl.is „Víkja frá arfleifð hefndar og haturs“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óraunsæi Sjálfstæðisflokks í utanríkismálum.....

segir fyrirsögn að pitli Össurar Skarphéðinssonar í Visir.is.

 

http://www.visir.is/oraunsaei-sjalfstaedisflokksins-i-utanrikismalum/article/2013702029993

 

Eitthvað finnst mér þetta ekki ganga alveg upp hjá blessuðum utanríkisráðherranum okkar enda hefur hann verið þekktur fyrir að hagræða sannleikanum.

 

Ég man ekki betur en það hafi verið Bandaríkjaþing sem setti það í lög að loka ætti herstöðini í Keflavík meðal annara víðsvegar í heiminum. Að Sjálfstæðisflokkurinn sé með svo mikil völd að hann hafi getað stoppað lokun herstöðvarinar í Keflavík er auðvitað út í hött. En það var hægt að seinka lokunini og Jón Baldvin utanríkisráðherra fór til BNA og kom því til leiðar. En lögin voru skír, herstöðini yrði lokað.  

Svo var það Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (SF) sem var utanríkisráðherra frá 2007 - 2009, og viðskiptamála ráðherra frá 2007 - 2009 var Björgvin G. Sigurðsson (SF) sem auðvitað fór með bankamál.

Sérstakjega er það merkilegt þegar Össur skrifar um atburðarás mála á hrundögum í október 2008 eins og hann kallar það.

Var það ekki Samfylkingin sem fór með utanríkismál og viðskiptamál (bankamál) á þessum tíma og ef ég man rétt þá var það Össur sjálfur sem fór með utanríkismál á þessum hrundögum vegna veikinda Ingibjargar. Hefði fyrirsögnin ekki frekar átt að vera Óraunsæi Samfylkingarflokks í utanríkismálum.

Össur hraunar yfir Sjálfstæðisflokkinn í þessari grein í utanríkismálum en voru ekki samstarfsflokkar í Ríkisstjórnum Sjálfstæðisflokksins sem voru yfirleitt með utanríkisráðherra embættið. Eins og til dæmis 2003 Halldór Ásgrímsson (F)?

Alveg er það merkilegt að Samfylkingarmenn vilja ekki taka eina einustu ábyrgð á neinu, þó svo að Samfylkingarfólk hafi farið með ráðherraembætti einmit í þeim málum sem Össur er reina að koma sökini á Sjálfstæðisflokkinn.

Ættli kosningar barátta Samfylkingarinar verði sem sagt þessi; ekki kenna okkur um eitt eða neitt ef það fór illa, það eigið þið að kenna Sjálfstæðisflokknum um. Ekki bara fram til 2009 heldur líka til 2013 þó svo að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki verið í Ríkisstjórn 2009 - 2013, skiptir ekki máli það er samt þeim að kenna.  

 

 


Magnús Orri vill aukna samvinnu við ákvarðanatöku

Þeeta er innantómur áróður hjá Magnúsi Orra, því ef hann meinti eitthvað með þessu þá hefði hann kallað á stöðvun Stjórnarskrársfrumvarpsins og það yrði farið yfir ábendingar sérfræðinga um Stjórnarskrárlög og reglur.

Ekki gerði Magnús Orri það, en ef hann meinti eitthvað með þessum orðum sínum, þá hefði hann auðvitað kallað aukna samvinnu við ákvarðanir Stjórnarskráfrumvarpsins sem mikil óánægja með eins og hún er skrifuð í dag.

Þetta er gamla trikkið við viljum vera svo góðir og samvinnuþýðir við alla svona rétt fyrir kosningar. Ég vona bara að kjósendur láti ekki svona fagurgala plata sig og vonandi þarf Magnús Orri að fara á atvinnuleysisbætur eftir kosningarnar í vor.

Ef Magnús Orri kallar á að Stjórnarskrárfrumvarpið verði tekið af dagskrá Alþingis og kallar á samvinnu allra flokka og kunnáttumanna til að gera þetta plag þess virði að vera Stjórnarskrá Íslans, þá first væri mark takandi á orðum hans.

En ekki að gleyma því að ef að nýja stjórnarskráin hefði verið í gildi og sú gamla farinn þegar IceSave vitleysan byrjaði, þá hefði þjóðinn ekkert fengið að kjósa um IceSave samninga ferilin.

Ekki halda í ykkur andanum og bíða eftir að Magnús Orri geri það sem hann sagði, því þið mundu kafna.

Kveðja frá Las Vegas


mbl.is Vill aukna samvinnu við ákvarðanatöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

The Whinery!

Höfundur

Jóhann Kristinsson
Jóhann Kristinsson
Hef mikinn áhuga á stjórnmálum og öðrum málum sem varða rétt hins almenna borgara.

Færsluflokkar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Untitled1
  • Untitled1
  • ..._77_1170896
  • ..._77_1170895
  • ..._77_1170894

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 44906

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband